Prófkjör framundan
Föstudagur, 6.3.2009
Í dag kl. 12 hefst prófkjör Samfylkingarinnar í NV. Um er að ræða netprófkjör þar sem 11 frambjóðendur gefa kost á sér. Ég held að Samfylkingin sé eini flokkurinn sem ætlar sér að nota tæknina sér til handa við að velja á lista. Hægt er að kjósa fram til kl. 16:00 á sunnudaginn. Ég viðurkenni að það er komin smá spenna í mig. Þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt að taka þátt í þessu og hef ég fengið að kynnast virkilega skemmtilegu fólki.
Þetta er ótrúlega flottur hópur þó ég segi sjálf frá. Allt um prófkjörið má finna hér: www.xsnv.is
Hér á neðri myndunum má sjá Ólínu spá í spilin fyrir okkur meðframbjóðendur sína. Nú verður fróðlegt að fylgjast hvort að spárnar gangi eftir.
Athugasemdir
Hún er mögnuð hún Ólína. Ekki er ég hissa þó þú sért með nett fiðrildabú í maganum. Það eru fleiri, þó ekki séu á lista.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 6.3.2009 kl. 11:08
Já, þetta var skemmtilegt ferðalag - og gaman að spá í spilin
Nú spyrjum við bara að leikslokum mín kæra.
Bestu kveðjur.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 6.3.2009 kl. 15:23
Fleiri mættu taka sér þetta fyrirkomulag til fyrirmyndar.
Hilmar Gunnlaugsson, 6.3.2009 kl. 18:42
tengillinn er xsnv.blog.is
Samfylkingin Norðvesturkjördæmi, 6.3.2009 kl. 21:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.