Í gamla Sovét
Mánudagur, 5.11.2007
Fyrir nokkru lofaði ég myndum frá Vilnius. Eftir mikla ritskoðun og pólitíska rétthugsun fundust nokkrar sem eru birtingarhæfar hér á alnetinu, aðrar myndir verða þó bara til heimbrúks.
Fyrsta kristna kirkjan sem byggð var í Vilnius
Við ána Neris sem rennur í gegnum borgina
Við leituðum uppi Íslandsgötu fyrir þjóðernisstoltið.
Hún var reyndar pínu hrörleg - en á örugglega eftir að ganga í gegnum einhverjar endurbætur.
Við tókum einu sinni strætó - það var reyndar hrein kjarabót. Farið kostaði tæpar 40 kr.
Það eru miklar framkvæmdir í gangi í Vilnius og þá sérstaklega vegaframkvæmdir. Til dæmis var okkur sagt að tvær af þremur stórum útgönguleiðum úr borginni væru lokaðar vegna framkvæmda - og mátti oft sjá skilti með Evrópusambandsfánanum. Spurning hvort við Vestfirðingar kljúfum okkur ekki frá Íslandi og göngum í Evrópusambandið og fáum almennilega vegi í leiðinni.
Vilnius er góður áfangastaður, fínt að versla, gott að borða og þó nokkuð að skoða.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.