Eftirleikurinn
Mánudagur, 12.3.2007
Baráttan í gær virðist hafa skilað því að Vestfirðir eru komnir inn á dagskrá, en það er alveg óvíst hversu lengi það verður. Þingmenn kjördæmisins hittust víst í dag til að ræða málin og fram kom í fréttum dagsins að taka á upp málið á ríkisstjórnarfundi á morgun. Geir Hilmar forsætisráðherra sagði í hádegisviðtalinu í dag á stöð 2 að hann ætlaði að kanna hvort það væri eitthvað sem ríkisstjórnin gæti gert - það er alveg greinilegt að hann var ekki með sína útsendara á fundinum. Það er nú ekkert vandamál að koma með haldbærar tillögur til að koma til móts við kröfur okkar Vestfirðinga.
Hérna kemur minn listi (ekki í neinni sérstakri forgangsröðun):
1. Flutningsjöfnun(styrkir) á meðan við bíðum eftir samkeppnishæfum samgöngum
2. Háskólatetur Vestfjarða verði Háskóli Vestfjarða - enda allir sammála um menntun sé lyklinn að jákvæðri byggðaþróun. Einn liður í því væri að fá hingað ESSI stofnunina sem mikið hefur verið rætt um til byggja styrkari stoðir undir háskólaumhverfið.
3. Að Menntaskólinn á Ísafirði fái að halda uppi almennilegri iðnbraut og ekki síst fái að þróa dreifnámið sitt.
4. Tenging milli Suður og norðurfjarða Vestfjarða með jarðgöngum.
5. Afsláttur á greiðslu námslána til fólks sem kýs að flytjast út á land að námi loknu (þetta er víst gert í Noregi til að fá fólkið aftur heim með góðum árangri)
Og að lokum myndi ég ekki slá hendinni á móti 20 þús þorskígildistonnum sem viðleitni til að skila aftur auðlindinni okkar, eins Ólafur Bjarni kom með tillögu um á baráttufundinum í gær.
Og ekki má gleyma öllum opinberu störfunum sem búið er að marglofa - en þau hefðu mjög jákvæð áhrif á atvinnulífið samhliða hinum aðgerðunum. Ætli Geir Hilmar myndi samþykkja þennan lista??
Spurning um að senda honum Byggðaáætlun Vestfjarða frá árinu 2003 - þar er aldeilis nóg af tillögum og aðgerðum sem grípa mætti til.
Athugasemdir
4. Tenging milli Suður og norðurfjarða Vestfjarða með jarðgöngum.
Af hverju?
Hvað fáið þið út úr þessum göngum?
Birna Mjöll Atladóttir, 13.3.2007 kl. 21:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.