Krónudrottinssaga
Laugardagur, 7.3.2009
Jæja nú eru 18 tímar þangað til prófkjörinu lýkur. Ég er enn þokkalega róleg. Hef reyndar ekki lagst í símann en mamma hefur nú hringt nokkur símtöl Það er spurning hvaða áhrif það hefur. Kvöldið hefur verið líflegt en nærfjölskyldan hefur verið í mat (bæði skráðir félagar og óskráðir).
Frumburðinn er að skrifa sína fyrstu skáldsögu; Krónudrottinssögu. Hún fjallar um fall krónunnar. Fyrstu kaflarnir eru komnir í á blað. Ég vona að hún endi vel - krónan giftist Evrunni.
Ef einhverjir eru ekki búnir að kjósa þá minni ég á www.vefprofkjor.is
Athugasemdir
Sendi þér friðsælar baráttukveðjur, er búin að kjósa í prófkjörinu.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 7.3.2009 kl. 22:14
Takk fyrir það Fríða. Ég vona að við fáum góða kjörsókn.
Arna Lára Jónsdóttir, 7.3.2009 kl. 22:19
Til hamingju með þriðja sætið, efast ekki um að þú verður þingmaður í vor. Glæsilegur árangur hjá þér.
Rögnvaldur Þór Óskarsson, 8.3.2009 kl. 19:32
Til hamingju með árangurinn í prófkjörinu Arna Lára mín - þetta var mikill og góður áfangi.
Kær kveðja.
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, 9.3.2009 kl. 10:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.