Væri ég danskur ríkisborgari...

Þá myndi ég glöð setja X-ið góða við A-ið. Nú loksins er social demókratarnir komnir með hellethorning

flottan leiðtoga, Helle Thorning-Smith, eftir að hafa verið í hálfgerðum leiðtogavandræðum. Morgens Lykketoft var formaður þeirra þegar ég bjó í DK en ekki get ég sagt að hann hafi höfðað eitthvað sérstaklega til mín - kannski var ég bara ekki nógu góð í dönsku.Wink Helle hefur mikinn karisma eins og hún sýndi svo vel á landsfundi Samfylkingarinnar í vor. Heillaði mig algjörlega.

Það er komin mikil spenna í dönsku þingkosningarnar og eru Social demókratarnir að saxa forskot Venstre sem er hreint ekki vinstri flokkur. Eru að bæta við manni miðað við síðustu þingkosningar á meðan Venstre er að tapa 7 mönnum. Það vantar herslumuninn upp á að stjórnin falli og að Helle verði forsætisráðherra Danmerkur og þá væri sko gaman að vera í DK.

 

09nov2007_ramboell_0_60326a

 Skoðanakönnun: Jyllandsposten 9.nóvember 2007

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Sama segi ég, það væri sko gaman að vera ef þeir ynnu! Ekkert búin að frétta í dag, en þú?

Edda Agnarsdóttir, 10.11.2007 kl. 16:13

2 Smámynd: Arna Lára Jónsdóttir

Samkvæmt könnun sem birtist á politikken í dag þá er Socail dómkratarnir með 27,8% og Venstre 25,6% og stjórnin heldur því miður enn velli. En eru tveir dagar eftir.

Arna Lára Jónsdóttir, 10.11.2007 kl. 18:26

3 Smámynd: Edda Agnarsdóttir

Æi það heppnaðist ekki í þetta skiptið! En næsta verður það að heppnast og þá förum við bara til DK og hjálpum henni!

Edda Agnarsdóttir, 14.11.2007 kl. 18:35

4 Smámynd: Guðmundur Björn

Sem betur fer Arna mín, komst þessi kona ekki til valda enda hættuleg samfélaginu í Danmörku.  Nú stendur hún uppi sem sá leiðtogi sósíalista með verstu kosningaútreið í sögu flokksins.  Danir eru vonandi búnir að neita sósíalismanum endanlega, í þeirri mynd sem þeir hafa verið heilaþvegnir í síðustu áratugi.

Guðmundur Björn, 15.11.2007 kl. 15:59

5 identicon

Hún er mjög myndarleg, en blandast það vel við pólitík?

Sigurður Arnfjörð (IP-tala skráð) 16.11.2007 kl. 20:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband